Hvað skiptir þig raunverulega máli?

Margir leita sér aðstoðar með þá einlægu ósk að láta sér líða betur. Það er skiljanlegt því enginn kýs að upplifa kvíða, streitu eða vanlíðan. En í ACT nálguninni stöldrum við oft við og spyrjum spurninga sem kemur fólki á óvart:

Hvað viltu standa fyrir í lífi þínu? Ekki bara þegar allt leikur í lyndi, heldur einmitt þegar á móti blæs og lífið er erfitt.

Gildi eru ekki markmið

Í daglegu tali ruglum við oft saman gildum og markmiðum, en það er mikill munur þar á. Markmið eru áfangar sem við getum náð eða klárað, til dæmis:

  • Að ljúka námi.
  • Að fá nýja vinnu.
  • Að hlaupa maraþon.

Gildi eru annars eðlis. Þau snúast um það hvernig við viljum lifa og hvers konar manneskjur við viljum vera. Við klárum þau aldrei við æfum þau alla ævi. Dæmi um gildi eru:

  • Að vera heiðarleg.
  • Að sýna umhyggju.
  • Að sýna hugrekki.
  • Að rækta tengsl.

Þú getur aldrei „klárað“ það að vera umhyggjusöm manneskja, en þú getur tekið skref í þá átt aftur og aftur á hverjum einasta degi.

Þegar lífið fer á sjálfstýringu

Margir finna fyrir vaxandi vanlíðan þegar lífið fer smám saman á sjálfstýringu. Dagarnir fyllast af verkefnum, skyldum og kröfum og við förum að lifa meira til að forðast óþægindi en til að nálgast það sem skiptir máli. ACT bendir á að kvíði og streita séu oft ekki merki um að við séum á rangri leið heldur að eitthvað dýrmætt sé í húfi.

Gildi sem áttaviti

Í stað þess að spyrja stöðugt: „Hvernig líður mér?“ leggur ACT til að við spyrjum líka: „Er ég að lifa í takt við það sem skiptir mig máli?“

Þegar við notum gildin okkar sem áttavita fáum við meiri skýrleika í ákvarðanatöku, jafnvel þegar tilfinningarnar eru erfiðar. Við getum verið kvíðin og samt valið að sýna hugrekki. Við getum verið þreytt og samt valið að vera til staðar.

Lítil skref skipta máli

Að lifa í samræmi við gildi sín krefst þess ekki endilega að við gerum stórtækar breytingar. Oft eru það litlu skrefin sem breyta mestu:

  • Að hlusta af athygli þegar einhver talar við þig.
  • Að segja það sem þér býr í brjósti.
  • Að setja heilbrigð mörk.
  • Að sýna sjálfum þér mildi þegar þér verður á.

Þessi skref eru ekki alltaf þægileg en þau gera lífið merkingarbærara.

Að lokum

ACT lofar ekki lífi án sársauka. Hún býður hins vegar upp á leið til að lifa þínu lífi. Lífi sem er mótað af gildum frekar en ótta. Kannski er góð byrjun að staldra við einmitt núna og spyrja:

Hvað skiptir mig raunverulega máli og hvaða litla skref gæti ég tekið í þá átt í dag?

Æfing

Þessi æfing hjálpar að tengjast gildunum sínum í amstri dagsins.

Staldraðu við í fimm sekúndur (kannski á meðan þú ert að hita þér kaffi eða bíða á rauðu ljósi) og spurðu sjálfa(n) þig: „Hvers konar manneskja vil ég vera einmitt núna?“

· Viltu sýna nærveru?
· Viltu vera þolinmóð(ur)?
· Viltu vera huguð/hugaður?

Veldu eitt orð og láttu það lýsa þér næstu klukkustundina. Þetta er lítið skref í átt að gildunum þínum.