Núvitund: Náttúran sem akkeri í storminum

Tengsl við náttúruna eru manninum eðlislæg. Við erum af jörðinni komin og þrátt fyrir að nútíma tækni vilji stundum aðskilja okkur frá náttúrulegu umhverfi er löngunin í þessi tengsl okkur í blóð borin.

Flest þekkjum við þá tilfinningu sem fylgir því að verja tíma úti. Vissulega leitum við frekar út þegar sólin skín en jafnvel þegar vindurinn blæs og rigningin bítur í kinnarnar getur útiveran gefið okkur mikið. Þar koma nútíma þægindi að góðum notum því við getum klætt okkur eftir aðstæðum og mætt náttúrunni á hennar forsendum.

Staldraðu við og spurðu sjálfa þig eða sjálfan þig: Hvernig líður mér þegar ég ver tíma úti? Finn ég fyrir aukinni orku, meiri ró eða innri næringu? Kannski verður skrefið aðeins léttara eða hugurinn opnari. Náttúran býður okkur nefnilega að vera til staðar án allra krafna um afköst eða árangur. Hún dæmir okkur ekki.

Að vera úti en samt fjarverandi

Í nútíma samfélagi eyðum við allt að níutíu prósentum af tíma okkar innandyra. Við höfum skapað okkur veröld þar sem störf, félagslíf og daglegt amstur fer að mestu fram innan fjögurra veggja. Með þessu höfum við fjarlægst okkar eðlislæga umhverfi.

Það er hægt að gera ýmislegt til að brúa þetta bil. Við getum varið meiri tíma úti á ýmsan hátt en það gagnast lítið ef hugurinn er stöðugt annars staðar. Heyrnartól eða símar geta dregið okkur aftur inn í heim tækninnar og hindrað tengslin við umhverfið. Sama á við þegar við festumst í erfiðum hugsunum eða tilfinningum, við hættum að taka eftir því sem er að gerast í kringum okkur.

Prófaðu að stinga heyrnartólunum í vasann í næsta göngutúr, þó ekki væri nema hluta tímans. Gefðu þér tækifæri til að hlusta á það sem náttúran hefur að segja. Það getur verið fuglasöngur, brakið í jörðinni undir fótunum eða þytur í grasinu. Oft er miklu meira að heyra en við gerum okkur grein fyrir.

Núvitund undir berum himni

Hér verður núvitund sérstaklega mikilvæg: Að vera til staðar í augnablikinu og taka eftir því sem er, bæði innra með okkur og í umhverfinu. Útivera getur hreinsað hugann þannig að áhyggjur og verkefni dagsins verði léttari eða taki hreinlega minna pláss. Þess vegna getur það verið kraftmikið bjargráð að fara út þegar álag, streita, depurð eða kvíði eru að trufla.

Rannsóknir sýna svart á hvítu að útivist hefur jákvæð áhrif á heilsu okkar og almenna líðan. En það þarf ekki að fara út í neinar öfgar. Þú þarft hvorki að klífa fjöll né synda í ísköldum sjó á hverjum degi til að njóta góðs af þessu. Fimmtán mínútna göngutúr dugar til að gera kraftaverk. Það getur verið stuttur hringur í hádegishléinu eða einfaldlega það að taka eftir trjánum og árstíðunum í þínu nærumhverfi. Jafnvel augnablik með kaffibolla við opinn glugga getur verið góð byrjun ef þetta er þér framandi.

Við á Íslandi erum sérlega lánsöm. Náttúran er aldrei langt undan og tækifærin til að tengjast henni eru nánast endalaus. Kannski snýst þetta ekki um að gera meira heldur einfaldlega að vera aðeins meira til staðar þar sem við erum.

Ein lítil æfing fyrir næstu útiveru: 5-4-3-2-1 jarðtenging

Næst þegar þú ferð út, hvort sem það er í langan göngutúr eða bara rétt út á stétt, prófaðu þá að staldra við í eina mínútu og virkja skilningarvitin. Þetta hjálpar þér að komast út úr hringiðu hugans og tengjast veruleikanum hér og nú.

Taktu eftir:

· 5 hlutum sem þú sérð: Það getur verið hvernig ljósið fellur á laufblað, liturinn á himninum, formið á skýjunum eða sprunga í malbikinu.
· 4 hlutum sem þú finnur: Til dæmis vindinn í andlitinu, hvernig fæturnir snerta jörðina, áferðina á úlpunni þinni eða hitann frá sólinni.
· 3 hljóðum sem þú heyrir: Hlustaðu eftir því sem er fjærst, eins og umferðarnið, og því sem er nær, eins og þínum eigin andardrætti eða fuglasöng.
· 2 hlutum sem þú finnur lykt af: Er fersk rigningarlykt í loftinu, sjávarloft eða kannski lykt af gróðri? Mundu, það er lykt af frostinu
· 1 hlut sem þú finnur bragð af: (Eða einni jákvæðri hugsun um þetta augnablik).

Þessi einfalda æfing tekur ekki langan tíma en hún minnir líkamann og hugann á að þú ert til staðar, hér og nú, í öruggu umhverfi.

Skráning á ACT grunnnámskeið

Nafn: *
Netfang: *
Kennitala greiðanda: *
Vinnustaður: *
Ég geri mér grein fyrir því að þegar ég hef fengið pláss á námskeiðinu fæ ég sendan greiðsluseðil í heimabanka

Skráning á ACT námskeið

Nafn: *
Netfang: *
Kennitala greiðanda: *
Vinnustaður: *
Ég geri mér grein fyrir því að þegar ég hef fengið pláss á námskeiðinu fæ ég sendan greiðsluseðil í heimabanka

Registration

Name: *
Email: *
Workplace: *