Þegar hugurinn er okkur andstæður

Hugsanir okkar geta verið ansi þreytandi. Stundum er eins og hugurinn lifi sínu eigin lífi og hafi það eina hlutverk að hrella okkur. Hann bendir á allt sem gæti farið úrskeiðis, rifjar upp gömul mistök á óheppilegum tímum eða heldur því fram að við séum hreinlega ekki nógu góð. Afleiðingin er oft lamandi kvíði, nagandi sjálfsgagnrýni og sú tilfinning að við séum föst í eigin höfði.

Gildran í jákvæðri hugsun

Við erum mörg alin upp við þá hugmynd að við eigum að stjórna hugsunum okkar. Hér á landi hefur það nánast verið þjóðarsport að skipa fólki að hugsa bara jákvætt. Jafnvel í sumum sálfræðimeðferðum er lögð áhersla á að rífast við neikvæðar hugsanir og reyna að skipta þeim út fyrir betri.

Fyrir marga verður þetta þó endalaus barátta sem enginn vinnur. Hugurinn hættir nefnilega ekki að tala og oft verður hann bara háværari þegar við reynum að þagga niður í honum. Að neyða sig í jákvæðni sem er ekki í takt við raunveruleikann getur hreinlega orðið að eitraðri kvöð sem eykur á vanlíðan.

Nýtt samband við eigin huga

Í ACT nálguninni lítum við ekki á hugann sem óvin sem þarf að sigra heldur sem hluta af okkur sem við getum lært að eiga í nýju og heilbrigðara sambandi við. Við þurfum nefnilega ekki að trúa öllu því sem hugurinn segir, frekar en við trúum hverri einustu auglýsingu sem við sjáum á skjánum hjá okkur.

Þegar við áttum okkur á því að hugsanir eru bara hugsanir en ekki heilagar staðreyndir þá opnast ný leið. Við getum valið hvort við ætlum að láta þær stýra ferðinni eða ekki. Við getum leyft þeim að vera til staðar líkt og bakgrunnshávaði og haldið samt ótrauð áfram að lifa lífinu í takt við það sem skiptir okkur raunverulega máli.

Æfing

Þessi æfing hjálpar að skapa fjarlægð á erfiðar hugsanir (Cognitive Defusion).

Prófaðu næst þegar erfið hugsun (eins og „ég get þetta ekki“ eða „ég er að klúðra þessu“) skýtur upp kollinum að setja hana í þennan ramma: Í stað þess að segja: „Ég get þetta ekki,“ segðu þá: „Mig langar að taka eftir því að ég er með þá hugsun að ég geti þetta ekki.“

Með því að bæta þessum litlu orðum framan við, verður hugsunin að því sem hún er í raun og veru: Atburður í huganum en ekki óumdeilanleg staðreynd

Skráning á ACT grunnnámskeið

Nafn: *
Netfang: *
Kennitala greiðanda: *
Vinnustaður: *
Ég geri mér grein fyrir því að þegar ég hef fengið pláss á námskeiðinu fæ ég sendan greiðsluseðil í heimabanka

Skráning á ACT námskeið

Nafn: *
Netfang: *
Kennitala greiðanda: *
Vinnustaður: *
Ég geri mér grein fyrir því að þegar ég hef fengið pláss á námskeiðinu fæ ég sendan greiðsluseðil í heimabanka

Registration

Name: *
Email: *
Workplace: *